Færsluflokkur: Bloggar

Þýskir jafnaðarmenn og staðan eftir kosningar.

Á sunnudaginn verður kosið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Nýjustu spár gefa til kynn að hægri flokkarnir CSU/CDU fái 39% atkvæða. Jafnaðarmönnum SPD er spáð 25% atkvæða. Vinstri flokkurinn Die Linke fær 10% atkvæða samkvæmt spám og græningjar Die Grunen fá 9%. FDP frjálsir demókratar fá 5% , Piratar 3% og aðrir samtals 9%. Jafnaðarmenn segjast vilja starfa með græningjum en afar ólíklegt er að þeir fái nægjanlegan þingstyrk. Þá kemur til greina samstarf við hægri flokkana eða Grosse Koalition. Sigmar Gabriel  formaður SPD á erfitt val fyrir höndum. Allt bendir til þess að Steinbruck kanslaraefni flokksins muni segja af sér að kosningum loknum.  Gabriel veit að andstaða er við samstarf til hægri í hans eigin flokki. Merkel kanslari er vinsæll og hætt er við að Gabriel myndi falla í skuggann af kanslaranum. Gabriel yrði því að halda vel á spöðunum. Hann yrði að tryggja sér áhrifamikið ráðherraembætti. Utanríkismálin gætu komið til greina en þá myndi hann fjarlægjast innanríkismálin. Samstarf  SPD við hægri flokkana kæmi Vinstri flokknum vel. Þeir gætu þá hamast gegn svikulum hægri-krötum. En enn eru nokkrir dagar í kosningar. Á fimmtudaginn munu jafnaðrmenn halda mikinn útifund á Alexanderplatz í Berlín. Þar mun Gabriel ekki tala um samstarf við hægri menn.

Herra þingmaður og frú ráðherra verða kurteis og málefnaleg.

Þingmaður Pírata Jón Þór Ólafsson tilkynnti nýlega á Alþingi að hyggðist nota herra og frú í stað háttvirtur og hæstvirtur. Þetta féll í fremur grýttan jarðveg þeirra sem í þingsalnum voru. Sumir hafa reyndar komið með þau merkilegu rök að ávörpin beinist að embættum og stöðu en ekki því fólki sem gegnir þeim. Í hugsun er hægt að greina á milli en það verður ekki gert í veruleikanum. Jón hefur nú skrifað grein og segir það að óformlegur hópur hafi verið myndaður á Alþingi. Frumkvæði kemur frá Frosta Sigurjónssyni og markmiðið er að vinna að bættri umræðuhefð. Þetta framtak Frosta er skref í rétta átt án nokkurs vafa. Frosti sýndi sjálfur nýlega hvernig bæta má umræðuhefð. Hann taldi að Drómi heyrði undir FME og Alþingi eða ríkisstjórn gætu sagt FME fyrir verkum. Hvoru tveggja var rangt. Frosti baðst afsökunar á þessum mistökum eða rangfærslum. Þetta er eitt af því sem þarf að breytast. Menn verða að geta viðurkennt mistök. Auðvelt er að sjá að Frosti og félagar munu eiga við ramman reip að draga. Hluti af stjórnmálaumræðu er sviðsetning í fjölmiðlum. Hluti af stjórnmálabaráttu er hönnun atburðarásar. Hluti af stjórnmálabaráttu er að bola mönnum burt úr valdastöðum. Stjórnmálaflokkarnir eru stofnanir eða tengslanet og nokkrir þeirra eiga sér langa sögu. Sumir hópar í flokkunum telja sig eiga sérstakt tilkall til valdaembætta. Málefnaleg umræða þjónar ekki endilega hagsmunum slíkra hópa. Ljónin í veginum eru mörg en það er hægt að bæta umræðuhefð á Alþingi og það er bráðnauðsynlegt.

Við hvað starfa erlendir ríkisborgarar hér á landi?

Árið 2011 sendi Byggðastofnun frá sér skýrslu þar sem m.a. var gerð grein fyrir stöðu erlendra ríkisborgara á vinnumarkaði. Í byrjun árs 2011 voru 20526 erlendir ríkisborgar hér á landi. 15 árum áður höfðu þeir verið tæp fjögur þúsund. Þróunin hafði því verið afar ör. Ég hef áður bloggað um fjölda útlendinga eins og hann er nú. Á þriðja ársfjórðungi 2008 voru 183800 manns starfandi á íslenskum vinnumarkaði. Á einu og hálfu ári fækkaði starfandi um 19900. Árið 2011 var nokkur fjölgun starfa en hlutastörfum hefur fjölgað allt frá 2008. Tölur um atvinnugreinaskiptingu eftir ríkisfangi eru frá 2006( eftir því sem ég best veit) og þá unnu 47% erlendra ríkisborgara við þjónustu og sama tala í iðnaði. 6% störfuðu við fiskvinnslu(og veiðar) og landbúnað. Skiptingin hjá íslensku vinnuafli er allt önnur. 73% vinna við þjónustu, 22% við iðnað og 5% við frumvinnslugreinar. Erlendir karlar störfuðu flestir í iðnaði en konur í þjónustu. Reynslan sýnir að hluti innflytjenda verður virkur í frumkvöðlastarfi og þar með verða ný störf til. Erlendir ríkisborgarar koma hingað þegar skortur er á vinnuafli. Þeir minnka spennu á vinnumarkaði og auka hagvöxt. Þeir koma ekki til að taka störf frá Íslendingum. Árið 2008 störfuðu 439 erlendir ríkisborgarar á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Árið 2010 var talan 314. Mikill meirihluti er konur. Flestir koma frá Póllandi og Filipseyjum. 

Pyntingar í fangabúðum Norður Kóreu.

Nefnd á vegum SÞ hefur lýst því yfir að fangar séu kerfisbundið pyntaðir og misþyrmt í fangabúðum. Nefndin byggir skýrslu sína á upplýsingum þeirra sem lifað hafa af dvöl í slíkum búðum. Stjórnvöld vísa þessu frá sem pólitískum tilbúningi. M Kirby formaður nefndarinar sagði að pyntingar og ill meðferð væri kerfisbundin og útbreidd. Fangar eru sveltir og þessi meðferð getur leitt til dauða. Nefndin fékk ekki að skoða aðstæður í fangabúðunum og stjórnvöld neituðu allri samvinnu. Ætlað er að í Norður Kóreu séu 200 þúsund pólitískir fangar í fangabúðum. Þeir eru neyddir til að vinna. Við smávægilegum yfirsjónum er hörð refsing. Fangar eru hengdir, sveltir og pyntaðir. Stjórnvöld neita öllum ásökunum um að brjóta mannréttindi.

Fjármálaráðherra, hóflegu kröfurnar og verðbólgan.

Í viðtali nýlega fór BB með kunnuglega þulu. Þulu sem hefur verið endurtekin undanfarna áratugi. Launakröfum stórra hópa á almennum vinnumarkaði og á opinberum markaði  á að stilla í hóf. Innistæðulausar launahækkanir leiða af sér verðbólgu og þar með vernsandi kjör allra Nú virðast ekki sömu reglur gilda fyrir alla. Forstjórar ríkisfyrirtækja hafa fengið launaleiðréttingu aftur í tíman þar sem leiðrétting sumra var hærri en grunnlaun stórra hópa á almennum markaði. Launahækkanir hafa orðið fjármála greiranum og skilanefndir eru sérstakt fyrirbæri í þessu samhengi. Arðgreiðslu til eigenda ýmissa stórfyrirtækja hafa verið með hæsta móti. Hvergi hefur BB lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessarar þróunar. En hvað leiðir nú til verðbólgu hér á landi? Eru það fyrst og fremst of háar launakröfur? Í áraraðir hefur verðbólga hér á landi verið verulega hærri en í helstu viðskiptalöndum og í nágranna löndunum. Til að skilja verðbólgu þurfum við að skoða gengisþróun og peningastefnu. Þá kemur í ljós að krónan, gjaldmiðilinn , er upphaf og örsök hagsveiflna frekar en niðurlag þeirra. Peningastefnan hefur ekki stuðlað að stöðugleika og lítið öguð efnahagsstjórnun og fjármálastjórnun leiðir til reglubundind falls krónunnar. Það eru aðrir og sterkari kraftar en óhóflegar kröfur sem leiða til verðbólgu.Fjármálaráðherrann sem vill halda í krónuna vill því að alemnningur beri birgðarnar af lélegri hagstjórn og óstöðugu hagkerfi.

Af hverju eru efnavopn bönnuð?

Á ráðstefnu í Haag 1899 voru eitruð efnavopn og gas bönnuð í hernaði á alþjóðavísu. þrátt fyrir bannið var efnavopnum beitt í fyrri heimsstyrjöldinni. En þeim var eingöngu beitt gegn hermönnum. Í Genf 1925 var bannið enn ítrekað. Í seinni heimsstyrjöldinni voru efnavopn ekki notuð í bardögum en Hitler lét nota zykikon b eiturgas í útrýmingarbúðunum. Nánast allir menn líta á efnavopn sem skelfileg vopn vegna þess hvernig þau drepa og hvernig þau dreifast. Það eykur á skelfinguna hvernig vopnin eru notuð. Nánast allir ráðamenn virða bannið. Undantekning er Saddam Hussein sem notaði efnavopn í stríðinu gegn Íran og gegn Kúrdum og öðrum minnihlutahópum í  Írak. 1995 beitti sértrúarhópur heimatilbúni taugagasi í neðanjarðarlestum Tokyo. Stjórnarher Sýrlands á miklar birgðir af efnavopnum. Þær eru nálægt 1000 tonnum og innihalda m.a. taugagasið sarin. Eftirlitsmenn SÞ telja öruggt að 21. 8. hafi sarin verið beitt í Sýrlandi.

Stjórnarmyndun og ný stjórn í Noregi.

Erna Solberg formaður Hægri flokksins (Hoyre) vinnur nú að stjórnarmyndun og mun gefa sér góðan tíma. En hvers konar flokkur er Hoyre sem vann svo glæstan sigur í kosningunum? Flokkurinn var stofnaður 1884 og var til að byrja hreinræktaður hægri flokkur. Hann var á móti þeim pólitísku umbótum sem Verkamannaflokkurinn og verkalyðshreyfingin knúðu í gegn og eru nú órjúfanlegur hluti af pólitísku kerfi landsins. Í dag hefur flokkurinn færst inn á miðjuna og tekur mun hófsamari afstöðu til mála. Í síðustu kosningum fékk flokkurinn 48 þingmenn og fylkisaukning var 18%. Á 9da áratugnum tókst flokknum að vinna fylgi hjá fjölbreyttari kjósendahóp. Í ársbyrjun 2013 voru rúmlega 32000 félagar í flokknum. Flokkurinn vill hafa valfrelsi í skólamálum og heilbrigðismálum. Miklu skiptir að ríkisvaldið verði ekki of stórt og dýrt í rekstri. Flokkurinn vil jafna stöðu nýnorsku og bókmáls. Í flokknum hefur ávalt verið togstreita milli íhaldssemi og frjálslyndis. Á árunum 1945 til 1961 hafði Verkamannaflokkurinn hreinan meirihluta á Stórþinginu. Hoyre var þá ekki harður andstöðuflokkur heldur leitaði samstarfs. Á níunda áratugnum verður Kare Willoch forsætisráðherra og þá einkenndist stefnumótun af meiri frjálslyndi. Þá var einokun NRK aflétt, frjálsræði í fasteignaviðskiptum aukið og fleira í þeim dúr.  Þau K Willoch og Gro Harlem Brundtland deildu hart um grundvallar atriði sstjórnmálanna og þær deilur eru nú hluti af norskri stjórnmálasögu. Nú er að hefjast nýtt skeið í norskum stjórnmálum. Framtíðin mun leiða í ljós hvort Solberg muni geta mótað samfélagið með svipuðum hætti og Willoch. 

Ísland er fjölmenningarsamfélag.

Þjóðríkið í hefðbundnum skilningi er ekki lengur til. Alþjóðavæðingin felur í sér að mikill hreyfanleiki er á fjármagni og vinnuafli. Fjármálamarkaðurinn spannar allar jörðina. Alls staðar leitar fjármagnið að mögulegri uppsprettu hagnaðar. Hann fæst með því að nýta eða ofnýta náttúruauðlindir og vinnuafl. Vísindaleg þekking sem er hagnýtt í tækni skiptir höfuð máli. Vinnuaflið er einngi hreyfanlegt en í minna mæli en fjármagn. Hér á landi hefur orðið til fjölmenningarsamfélag á fáum áratugum. Það hefur sín sérkenni. Í ársbyrjun 2013 voru inflytjendur samtals 25956 en 29130 ef önnur kynslóð innflytjenda er talin með. Það eru 9.1% landsmanna eða ellefti hver maður í landinu. Pólverjar eru 9363 eða 3% landsmanna. Pólverjar eru langflestir rómversk kaþólskrar trúar. Pólverjar eru afar fjölmennur innflytjendahópur í mörgum löndum Evrópu. Nefna má Bretland. Hæsta flutfall innflytjenda er á Vestjörðum og Suðurnesum. 8% vinnuaflsins eru erlendir ríkisborgarar en 20% atvinnulausra. Atvinnuleysi meðal Pólverja er 15%. Erlendir ríkisborgarar með skattaalega heimilisfesti hér greiddu 10 milljarða í skatta í fyrra. Í grunnskólum landsins eru 2663 börn mer erlent móðurmál. Þriðjungur kvenna sem leituðu til Kvennaathvarfsins var erlendur ríkisborgari. Þessar örfáu tölur gefa vísbendingu um hver er staða innflytjenda og erlendra ríkisborgara hér á landi. Hælisleitendur hér eru tiltölulega fáir miðað við önnur Norðurlönd. Íslendingar hafa nánast alla sögu sína verið opnir fyrir erlendum áhrifum og straumum. Höfðingjar Þjóðveldistímans hér á landi tilheyrðu höfðingjastétt Norðurlanda. Erlendir ríkisborgarar sem fluttust til landsins á síðustu öld höfðu ómæld áhrif á tónlistarlíf landsins. Hernám landsins olli straumhvörfum í atvinnuháttum, tækni og menningu landsins. Þá sté Ísland inní nútímann. Ótti og fordómar hafa alls staðar gert vart við sig í fjölmenningarsamfélögum samtímans.

Eygló, stjórnarsamstarfið og hjónabandið.

Félagsmálaráðherra bloggar um stjórnarsamstarfið á Eyjunni  í dag. Hún segir að stjórnarsamstarf sé ekki ólíkt hjónabandi. Um er að ræða tvo ólíka einstaklinga sem ætla að vera saman en sameinast ekki í einn einstakling. Forsenda hjónabandsins sé virðing og vilji til að leysa málin sameiginlega. Þetta verður að teljast afar sérkennileg hugmynd um hjónaband og stjórnmálaflokka. Grunnur hjónabandsins er gagnkvæm ást og vilji til að lifa saman um ótakmarkaðan tíma. Grunnur stjórnarsamstarfs er hagsmunamat forystumanna flokkanna. Þeir meta út frá stefnumálu með hverjum er hægt að koma sem mestu fram af stefnumálum síns fókks. Grunnurinn er því valdahagsmunir flokka en ekki gagnkvæm ást. Samstarfið er takmarkað í tíma og stefnumál eru skilgreind nákvæmlega. Ekkert þessu líkt gerist í hjónabandi. Stjórnmálaflokkur er ekki einn einstaklingur og hann hefur ekki eigin vilja. Það hafa hins vegar karl og kona í hjónabandi. Í bloggi sínu tekur Eygló fram að einstaklingar sameinist ekki í einn í hjónabandi og ekki heldur í stjórnarsamstarfi. Þrátt fyrir góðan vilja er mér lífsins ómögulegt að skilja hvað þetta merkir. Einnig bendir Eygló Harðardóttir á að hjónabönd eigi sér ekki andstæðinga í sama skilningi og ríkisstjórnir. Ha,ha, það er rétt. Én hvað í ósköpunum á það að merkja?-Pönnukökur hér og vöflur þar....

Áliðnaður í kreppu.

Boston Consulting Group hefur skrifað skýrslu og greint ástand áliðnaðar í heiminum. Staðan einkennist af miklu offramboði á áli og lágu verði. Ekki eru horfur á að verð hækki á komandi árum. Einu viðbrögðin eru því samdráttur í framleiðslu  og að minnka framleiðslugetu. Það merkir að loka verksmiðjum. Á árunum 2007 til 2012 jókst álframleiðsla í Kína afar mikið og þeir urðu sjálfum sér nógir. Á sama tíma jókst eftirspurn utan Kína mun minna en stóru álfyrirtækin höfðu gert ráð fyrir. Nú eru álbirgðir í heiminum afar miklar eða 10 til 12 milljón tonn. Í áliðnaðinum er Kína í lykilhlutverki. Kína er sjálfbært en þarf að flytja inn mikið af súráli og báxit. Verðhækkun á þessum hrávörum er hugsanleg. Vegna bættrar tækni og aukinnar framleiðni er líklegt að útflutningur Kínverja aukist. Þrátt fyrir offramboð á markaði eru Kínverjar enn að byggja risaálver. Vegna offramboðs og fyrirsjáanlegs samdráttar og lágs verðs á áli  hefur verð á hlutabréfum álfyrirtækja lækkað mikið. Á fimm árum hefur markaðsverð stærstu álfyrirtækja lækkað um 65%. Eitt af úrræðum stóru álfyrirtækjanna er sameining. Eitt risafyrirtæki hefði getu til að minnka framleiðslu nægilega mikið til að skapa nýtt verð á markaði. Það eru erlend álver sem eiga álverksmiðjur hér á landi. Ástandið á heimsmarkaði mun óhjákvæmilega hafa áhrif hér. Óvíst er hversu mikil. Eitt er algjörlega augljóst. Íslensk orkuframleiðsla er að stórum hluta háð erlendri stóriðju. Það er hættulegt að gera hana enn háðari. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband