Færsluflokkur: Bloggar

Herra þingmaður og frú ráðherra.

Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata vill breyta þingvenjum. Í dag tók hann eitt lítið skref. Hann ætlar ekki  að nota háttvirtur og hæstvirtur í ávörpum. Í stað þess mun hann nota herra og frú. Hann vill sýna kurteisi en virðingu verða menn að ávinna sér. Allt er þetta rétt og hefði mátt ætla að þingheimur tæki þessum tillögum fangandi. Svo var þó ekki. Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður þingsflokks Sjálfstæðisflokksins sté í pontu og sagði að hefðbundin ávörp hefðu tíðkast í áratuganna löngu rás (!) og það væri ekki í valdi eins þingmanns að breyta svo fastri venju(!). Um það að virðing væri áunnin var hún væri hún hins vegar sammála Jóni Þór. Starfandi þingforseti áminnti Jón Þór og sagði að hin mjög svo fasta þingvenja hefði stoð í lögum um þingsköp. Í nefndum lögum stendur ýmislegt sem ekki virðist vefjast fyrir þingmönnum. Í 65. grein segir að þingmönnum sé skylt að sækja þingfundi nema nauðsyn banni. Ef menn færu eftir þessu hefði enginn þingmaður þurft að kvarta yfir því að hann talaði fyrir tómum þingsal. Enginn þingmaður hefði þurft að auglýsa sérstaklega eftir því að ráðherra væri viðstaddur umræður. Ofuráhersla á form táknar oft að innihald er rýrt. Það að ríghalda í innihaldslaust form veitir hugsanlega einhverjum öryggi á miklum óvissutímum. Við vonum að Jón Þór komi með fleiri tillögur til úrbóta á stirnuðum föstum venjum Alþingis.

Lífeyrissjóðir öflugir á hlutafjármarkaði.

Líklega eiga lífeyrissjóðirnir 32% af markaðsvirði útgefins hlutafjár. Þetta má áætla út frá upplýsingum sem Kauphöllin lætur frá sér fara. Í byrjun þessa mánaðar nam markaðsvirði eigna lífeyrissjóðanna 133 milljörðum króna. Af einstökum sjóðum er Lífeyrissjóður verslunarmanna atkvæðamestur og nam eign hans 41 milljarði. Eign LSR nam 32 milljörðum og Gildi á 21 milljarð. Lífeyrissjóðirnir eiga stóran hlut í nánast öllum félögum sem skráð eru í Kauphöllinni. Sem dæmi má nefna að lífeyrissjóðirnir eiga um helmings hlut í Icelandair og Vodafon. Lífeyrissjóðirnir eru virkir í viðskiptum og þá bæði sem kaupendur og seljendur hlutabréfa.

Norska Alþýðusambandið setur fram kröfur til Ernu Solberg.

Gerd Kristiansen formaður LO vill fá skýr svör fá Ernu Solberg um stefnuna í efnahagsmálum. Forystumenn samtakanna vilja fá skýr svör vegna þess að mikið er í húfi. Munu hægriflokkarnir setja meira af olíugróðanum inn í hagkerfið? Það myndi leiða til þenslu og skattalækkanir myndu litlu breyta. Ríkisstjórnin verður að tryggja að nægar greiðslur renni inn í lífeyrissjóðskerfið. LO hefur óskað Solberg til hamningu og óskað eftir góðu og ábyrgu samstarfi. Náið samráð er milli samtaka atvinnurrekenda , launafólks og ríkisstjórnar á hverjum tíma. Kristiansen er þeirrar skoðunar að nú þegar Verkamannaflokkurinn er utanstjórnar muni samráðið og áhrif LO ekki breytast. LO eru stærstu samtök launafólks í landinu. Félagar eru 900 þúsund en það er helmingur þeirra sem eru innan samtaka launafólks í landinu. Mjög náið samstarf er milli Verkamannaflokksins og LO. Lo hefur stutt flokkinn með verulegum fjárframlögum.

Skuldir, eignir og tekjur heimila; að túlka tölur.

Nýlega birtust í fjölmiðlum upplýsingar frá Hagstofu Íslands um skuldastöðu heimila. Samkvæmt þeim hafði skuldastaðan batnað á árunum 2010 til 2012. Fjöldi heimila með neikvæða eiginfjárstöðu hafði minnkað. Tölur eru flóknar og þær þarf að túlka og setja í samhengi. Heimili með neikvæða eiginfjárstöðu getur horfið af listanum af mismunandi ástæðum. Skuldir hafa verið greiddar niður eða felldar niður eða markaðsvirði eignarinnar hefur vaxið. Einnig er mögulegt að fasteignin hafi  farið á nauðungaruppboð eða bankinn tekið hana til sín. Til þess að fá vit í slíkar tölur verða allar slíkar upplýsingar að liggja fyrir. Ólafur Margeirsson hagfræðingur hefur bent á aðferðafræðilegt vandamál. Hjá Hagstofunni eru tölur um skuldir, eignir, og ráðstöfunartekjur flokkaðar í tíundir. Nú er ekki víst að sama heimili sé í sömu tíund í öllum flokkum. Að öðru jöfnu vill Ólafur gera ráð fyrir því. Vandinn við þetta að þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á tengslum tekna og eignamyndunar sýndu lítil tengsl. Allir þekkja dæmi um að ekkert samhengi er á milli uppgefinna tekna og einkaneyslu. Samkvæmt tölum Hagstofunnar fækkaði fjölda heimila með neikvæða eiginfjárstöðu um 7000 á árunum 2010 til 2012. Það er alveg ljóst að Íbúðalánasjóður og fjármálastofnanir hafa ekki tekið allan þennan fjölda til sín. Skuldavandi og greiðsluvandi eru sitt hvað. Þau 20% sem hafa hæstar tekjur hafa 48% allra tekna en þau 20% sem hafa minnstar tekjur hafa 4% allra tekna. Vaxtagjöld eru hæst hjá þeim sem hafa hæstar ráðstöfunartekjur eða ca. 27% af ráðstöfunartekjum. Hjá þeirri tíund sem hefur lægstar tekjur eru vaxtagjöld um 10% af ráðstöfunartekjum. Almennt er það þannig að tekjulægstu heimilin eru í mestum greiðsluvanda. Tekjuhæsta tíundin skuldar mest og þessi hópur mun hagsnast mest á væntanlegum aðgerðum ríkisstjórnarinnar ef þær verða í formi flatrar niðurfellingar/leiðréttingar á skuldum. Enn er mögulegt að snúa frá þeirri ranglátu stefnu. 

Eþíópía og Ísland.

Nýlega var undirritaður samningur um verkefni á sviði jarðhitanýtingar í Eþíópíu. Margir aðilar koma að þessu verkefni : Ísland , Eþíópia, Norræni þróunarsjóðurinn og Alþjóða bankinn. Þáttur Íslands er að leggja fram hugvit og tækniþekkingu. Fyrsti hluti verkefnisins er að skilgreina líkleg svæði fyrir tilraunaboranir.  Áætlað er að íbúar Eþíópíu séu 86 milljónir. Búseta manna í landinu á sér afar langa sögu og nær langt aftur í forsögu mannsins. Í landinu eru töluð yfir 80 mismunandi tungumál. Fyrstu almennu kosningarnar í landinu voru 1994 en kosningar þar hafa verið mjög umdeildar vegna gruns um kosningasvik. Núverandi forsætisráðherra landsins heitir H Desalegn. Landið er næstfjölmennasta ríki Afríku og svipað að stærð og Bolívía. 

Heimsmet sett á Alþingi.

Í ræðu sinni á Alþingi í dag tilkynnti forsætisráðherra að ríkisstjórnin myndi setja heimsmet á næstu mánuðum. Í undirbúningi eru  róttækustu aðgerða stjórnvalda sem nokkurn tíma hafa verið framkvæmdar í veröldinni í þágu skuldsettra heimila. Þannig hljómuðu orð forsætisráðherra. Hér er greinilega stjórnmálamaður sem kann að hafa áhrif á væntingar almennings. Sett hefur verið fram kenning um byltingar. Þær verða þegar bilið milli væntinga um bættan hag og þess sem gerist verður óbærilegt. Vogun vinnur og vogun tapar. Hagstofan hefur nýlega sent frá sér Hagtíðindi þar sem kemur fram að skuldastaða heimilanna batnaði verulega á árunum 2010 til 2012. Heimilum með neikvæða eiginfjárstöðu hefur fækkað til muna. Í þessu ljósi má segja að mun auðveldara verði að setja heimsmetið. Í kosningabaráttunni lagði núverandi forsætisráðherra á það þunga áherslu að staðan í ríkisfjármálum væri mun verri en fegraðar tölur vinstri stjórnar sýndu. Fyrir nokkrum dögum sagði fosætisráðherra að staða ríkissjóðs væri svo góð að hann gæti hæglega greitt niður skuldir heimilanna og ætti nægan pening afgangs. Eitt er alveg ljóst. Forsætisráðherra hefur slegið alla út í hástemmdum lýsingum en í leiðinni sló hann alla út í mótsögnum. 

Hver er stefna Hoyre í Evrópumálum?

Hoyre vann glæstann sigur í norsku kosningunum. Flokkurinn mun leiða stjórnarmyndun og Erna Solberg verður næsti forsætisráðherra Noregs. Um stefnu flokksins í Evrópumálum má lesa á heimasíðu hans. Þar segir : náin samvinna og þátttaka er leið Evrópu út úr kreppunni. Noregur er hluti af pólitískum og efnahagslegum samruna. Hagsmunir Noregs eru þeir að taka virkan þátt í þessu ferli. Noregur er meira tengdur Evrópu en mörg lönd innan ESB. Noregur hefur innleitt 75% af ESB rétti án þess að hafa áhrif á ákvarðanir. (Sama á við um Ísland vel að merkja.) Samband Noregs við ESB einkennist af lýðræðishalla þar sem Noregur á ekki fulltrúa í stofnunum ESB. Þess vegna vill flokkurinn beita sér fyrir auknum samruna í Evrópu og einnig inngöngu Noregs í ESB. Ákvörðun um aðild yrði tekin í þjóðaratkvæðagreiðslu. (www.hoyre.no/politikk/hva mener hoyre om/utenriks og forsvar/europa eu/)

Hver á að vera forgangsröðun stjórnvalda? Svar Kára Stefánssonar.

Kári Stefánsson er án efa einn þekktasti vísindamaður Íslendinga á sviði læknavísinda. Hann ritar nú grein í morgunblaðið og gagnrýnir harðlega forgangsröðun vinstri stjórnar í erfiðri glímu hennar við afleiðingar hrunsins. Kári segir nú svo komið að heilbrigðiskerfið geti ekki sinnt hlutverki sínu og karlar og konur sem hefðu átt að lifa lengur séu líklega farin að deyja þess vegna. -þetta er stór orð og þau geta ekki staðið svona án frekari rökstuðnings.- En hvað gerði ríkisstjórnin rangt? 1. Hún lauk við Hörpuna fögru, 2. Hún lét reisa stórt hús í Vatnajökulsþjóðgarði.3. Hún reisti stórt hús fyrir Náttúrufræðistofnun. 4. Hún reisti Hof á Akureyri. 5. Hún stóð fyrir Vaðlaheiðargöngum 6. Hún hugðist reisa hús fyrir norræn fræði.6.Hún styrkti uppbyggingu Kísilverksmiðju á Bakka. -Nú er eitt og annað við þetta að athuga. Um sum mál var samstaða með stjórn og stjórnarandstöðu. Sumar framkvæmdir eru aðrsamar og skila strax tekjum í ríkissjóð. Það sem ríkisstjórnin virðist vera að reyna er að koma hinum frægu hjólum atvinnulífsins af stað.- Framangreindar byggingar líkjast austurþýskum alþýðuhöllum að mati Kára. Þá hló ég upphátt enda þekki ég slíkar byggingar vegna langrar dvalar í Berlín. Kári virðist fremur svartsýnn að núvernadi ríkisstjórn skakklappist til að bæta stöðu heilbrigðismála. Hann hvetur stjórnina til að hækka skatta á mönnum eins og honum. Hann hefði getað hvatt ríkisstjórnina til að hækka veiðigjald á stórútgerðinni en nú er hverju mannsbarni ljóst að hún er vel aflögufær. Hann hefði einnig getað minnst á auðlegðarskattinn. Hann hefði einnig getað minnst á vaskinn og ferðaþjónustuna. Niðurskurður er erfiður en hann verður skelfilegur og afkáralegur er ríkisstjórn sker niður eigin skatttekjur. 

Af hverju töpuðu vinstri flokkarnir í Noregi?

Við fyrstu sýn virðist erfitt að skýra úrslitin. Efnahagslífið er í blóma og hagur ríkissjóðs afar góður og velferðarkerfið er sterkt. Skýringa verður að leita annað. Annars vegar; hvert stefnir norskt samfélag og hins vegar hvað gerðist eftir hryðjuverkin 22. 7. 2011. Stjórnarflokkarnir lögðu áherslu á það það þeir væru bestir í að stjórna landinu. þeir kynnu að láta hlutina ganga rétt fyrir sig og að hafa alla stjórnsýslu í lagi. En nú verða alls konar mistök. Á sjúkrahúsum jafnt sem öðrum stofnunum. Öll slík mistök gefa stjórnarandstöðunni tilefni til gagnrýni og árása. Stjórnarflokkarnir drógu ekki upp nógu skýra mynda af markmiðum sínum sem greindu þá frá stjórnarandstöðuflokkunum. Hitt atriðið er að efttir hryðjuverkin virtist Verkamanna ófær um að hefja politíska sókn. Vantrú á skrifræði hefur alltaf einkennt norsk stjórnmál og þessi óánægja fer greinilega vaxandi. Verkamannaflokkurinn hefur verið lengi við völd og hann tengist óhjákvæmilega þunglamalegu skrifræði hins opinbera.  Jens Stoltenberg hefur sagt að þreyta hafi verið í stjórnarsamstarfinu og of margir stuðningsmenn flokks hans hefðu setið heima. Eftir sem áður er Verkamannaflokkurinn stærsti flokkur landsins. Hann hefur flesta þingmenn á Stórþinginu og var stærsti flokkurinn í nánast öllum kjördæmum. En í þetta skipti dugði það ekki. 

Hver er Erna Solberg?

Norski Hægri flokkurinn-Hoyre- vann frækilegan sigur í kosningunum og Erna Solberg mun nú mynda stjórn hægri-og miðflokka. Erna er fædd 21.2. 1961 í Bergen. Hún lagði stund á félagsfræði, stjórnmálafræði og hagfræði við Háskólann í Bergen. Aðeins 18 ára er hún kosin varafulltrúi í borgarstjórn Bergen. Hún var formaður sambands kvenna í Hoyre 1993 til 1994. Solberg var kosin á Stórþingið 1989. Á þingi var hún mjög vinnusöm , málefnaleg, kynnti sér málin til hlýtar og sýndi mikla flokkshollustu. Sem stjórnmálamaður er hún mjög fylgin sér og stundum kölluð Járn-Erna þó hún sjái sig sjálf ekki þannig. Eiginmaður hennar heitir Sindre Finnes en hann er hagfræðingur. Þau eiga tvö börn. Þau halda heimili bæði í Bergen og Oslo. Blogg Ernu Solberg má lesa hér : ernasolberg.wordpress.com. Upplýsingar um störf á Stórþinginu : www.stortinget.no

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband