Færsluflokkur: Bloggar
7.9.2013 | 08:04
Menntunarátak í Breiðholti.
Um er að ræða samstarfsverkefni ríkis, borgar og aðila vinnumarkaðar. Markmiðið er að bæta menntun þeirra sem hafa eingöngu grunnmenntun. Samkvæmt tölum Hagstofunar eru 30% allra starfandi á vinnumarkaði með grunnskólaþróf og hafa ekki lokið öðrum formlegum prófum. Nú er túlkun þessara talna og samanburður ekki einhlít. Í Breiðholti er tala þeirra sem formlega hafa ekki lokið öðru prófi en grunnskólaprófi 39%.Svæðisbundið atvinnuleysi er mjög hátt í hverfinu. Fjöldi fjölskyldna innflytjenda býr í hverfinu. Í Breiðholti búa nú tæplega 21 þúsund manns. Oft er talað um rótgróna fordóma borgarbúa gagnvart efri byggðum Breiðholts.Margvíslegar athyglisverðar hugmyndir hafa komið fram um að virkja sköpunarkraft unglinga til listsköpunar. Popp, rokk, teikning og hip hop dans eru viðfangsefni og svið sem hægt er að vinna með.
6.9.2013 | 17:56
Rochus Misch lífvörður Hitlers látinn.
Misch var orðinn 96 ára gamall þegar hann lést í Berlín. Hann var fæddur 1917 og var málari að iðn. Hann gekk í SS og tilheyrði þeirri sveit manna sem sáu m.a. um öryggi Hitlers. Hann virðist hafa verið þýskur Forrest Cump. Hann var þar sem heimssögulegir atburðir gerðust en virðist ekki hafa skilið það sem fram fór. Misch var aldrei félagi í NSDAP(nasistaflokknum). Á yngri árum var hann mikill íþróttamaður. Hann særðist illa í innrás Þjóðverja í Pólland og eftir það fékk hann starf hjá embætti kanslarans. Hitler var í samskiptum við Misch vinsamlegur og hógvær. Misch virðist aldrei hafa kynnst þeim Hitler sem saga mannkyns hefur að geyma. Hann var Hitler undirgefinn og trúr allt til endaloka 3j ríkisins. Rússar tóku hann fastann og fluttu hann til Moskvu. Þar vaar hann yfirheyrður og pyntaður. 1953 var honum sleppt og hann settist að í vesturhluta Berlínar þar sem hann vann í málningavöruverslun vinar síns. Í sjálfsævisögu sinni segist hann hafa hlotið örlög hermanns. (Der Spiegel).
6.9.2013 | 15:59
Börn og aðstandendur fanga.
Í Barnalögum og Barnasáttmála SÞ er börnum tryggður réttur til samskipta og samveru með foreldrum sínum. Af margvíslegum ástæðum getur orðið aðslilnaður barna við foreldri. Árið 2008 áttu 1.7 milljón barna í USA foreldri í fangelsum. Meirihluti barna lítur á forsjáraðila semforeldri og hefur lítil samskipti við foreldri sem situr í fangelsi. Fangelsi er þó afar mismunandi og sum eru fjölskylduvæn og mæður geta haft börn sín í fangelsinu eða farið með börnum sínum í sumarbúðir. Börn sem eru aðskilin frá foreldrum sínum eru líklegri til að þjást af geðrænum og félagslegum vandamálum síðar á lífsleiðinni. Í öllum fangelsum hér á landi er gert ráð fyrir að fangar fái heimsóknir. Á Litla Hrauni er fjölskylduherbergi sem ætlað er til heimsókna. Gert er ráð fyrir að hver fangi fái heimsókn í hverri viku. Nú eru mun fleiri feður en mæður í fangelsi en ætla má að líf barna raskist meir við fangelsisvist móður. Fangelsisvist brotamanns skapar margvísleg vandamál fyrir aðstandendur og börn. Andlegt álag getur orðið mikið og fer það eftir eðli brotanna. Ef brotið veldur mikill siðferðilegri fordæmingu getur það valdið aðstandendum miklum sársauka. Samfélagið refsar þeim sem saklausir eru. Í Verndarblaðinu er að finna margvíslegan fróðleik um aðstæður fanga og aðstandenda þeirra. Stofnfundur Verndar var 1959 og eiga samtökin sér alllanga sögu. Formlega tóku þau til starfa 1.2. 1960. Frá árinu 1995 hafa fangar verið vistaðir á Áfangaheimili Verndar. Fangar eru yfirleitt á bilinu 40 til 60 á ári. Þegar foreldri fer í fangelsi er það aðskilnaður og missir fyrir barnið. Sorg er eðlileg viðbrögð við missi. Börn verða varnarlaus og þarfnast stuðnings. Mikilvægt er að nærsamfélag barnsins-leikskóli og grunnskóli- veiti stuðning. Upplýsa þarf barnið í samræmi við þroska þess. Sterkar tilfinningar togast á hjá aðstadendum. Þeir skammast sín vegna hins brotlega en um leið reyna þeir eðlilega að verja hann.
6.9.2013 | 11:10
Hagur Síldarvinnslunar og grátfundurinn mikli.
Í mai í fyrra var haldinn opinn borgarafundur í Neskaupsstað. Fundarefnið voru tillögur vinstri stjórnar um veiðigjöld. Mikill hiti var á fundinum. Sumir sáu enga framtíð fyrir börnin sín ef veiðigjöld væru sett á. Aðrir sáu fram á að yfir 20 sjómenn myndu missa störf sín. Aðför stjórnvalda að byggðarlaginu. Þetta heitir að setja upp leikrit. Ef nógu vel er leikið munu menn trúa því sem sagt er. Áhorfendur í sal eru hluti leikritsins. Það er ekki tilviljanakennt hvernig atburðir verða að fréttum. Hugsum okkur tvö útgerðarmenn A og B. Útgerðarmaður A á góðan bát en vantar meiri aflaheimildir til að nýta bátinn betur. Útgerðarmaður B á bát sem á eru 5 menn en hann er mjög skuldugur og vill selja. Aflaheimildir eru áfastar skipum þannig að útgerðarmaður A kaupir bátinn af B til þess að fá auknar aflaheimildir. Hann ætla sér ekki að reka bátinn þannig að fimm sjómenn missa vinnuna og fara í land. Það má heita hending ef slíkir atburðir komast í fréttir en hvernig ætti störfum á sjó annars að hafa stórfækkað á undanförnum áratugum. Á fundinum á Neskaupsstað var það mikið drama að sjómenn misstu störf en á öllum öðrum tímum er það hversdagslegur atburður. Hagræðing á máli útgerðarinnar. Nú hefur Síldarvinnslan hf sent frá sér fréttatilkynningu. Góðæri er mikið hjá fyrirtækinu öfugt við mörg fyrirtæki og heimili í landinu. Hagnaður fyrir skatta er 8.6 milljarðar. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnskostnað 9.6 milljarðar(Ebitda). Eigiðfjárhlutfall er 59% og eigið fé 21.9 milljarðar. Veltufjárhlutfall er 2.08% Rekstrartekjur voru 24 milljarðar. 30% af hagnaði mun verða greiddur til hluthafa. Við þökkum fyrir góða leiksýningu.
6.9.2013 | 10:19
Viðsnúningur 2011. Ísland á leið úr kreppunni.
Árið 2009 varð samdráttur landsframleiðslu 6.6 % og árið 2010 4.1% samkvæmt tölum hagstofunnar. Árið 2011 sýndi fyrstu batamerki en þá varð hagvöxtur 2.7% en í fyrra varð vöxturinn 1.4%. Á evrópskan og bandarískan mælikvarða eru slíkar tölur góðar. BRIC- löndin eru talsvert fyrir ofan sem og Kína og nokkur önnur lönd í Asíu svo sem Vietnam. Á síðasta ári jókst fjárfesting um 5% sem einkum má rekja til kaupa á skipum og flugvélum. Árið 2012 jukust þjóðartekjur um 2.9% og árið áður um 5.8%. Viðskiptakjör versnuðu á síðastliðnu ári. Einkaneysla sem hlutfall af landsframleiðslu hefur verið í sögulegu lágmarki síðastliðin 5 ár. Það er nú 53.7%. Einkaneyslan á síðasta ári var svipuð neyslu ársins 2004 en landsmenn voru 10% fleiri í fyrra. Hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu hefur verið í mikilli lægð síðast liðin fjögur ár. Það er nú 14.5% en langtímameðaltal OECD landa er nálægt 20%. Að raungildi er fjárfesting síðasta árs svipuð og ársins 1997. Í krónum talið var landsframleiðsla síðasta árs 1698 milljarðar króna. (Hagtíðindi 6.9. 2013)
5.9.2013 | 20:15
Barnaníðingar eru bæði karlar og konur.
Kynferðisofbeldi er algengt hér á landi. Áætla má að fjórðungur barna hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi af einhverju tagi fyrir átján ára aldur. Í rannsókn sem gerð var 2002 voru konur gerendur hjá 3% þolenda. Það er afar flókið að bera kennsl á konur sem gerendur vegna þess hve mikið aðgengi konur hafa að börnum. Í kennslu-og umönnunarstörfum eru þær í lykilhlutverki. Konur sem beita börn kynferðislegu ofbeldi hafa gjarnan sjálfar orðið fyrir ofbeldi í æsku. Erfiðar fjölskylduaðstæður leiða oft til lágs sjálfsmats og erfiðleika að mynda tilfinningalegt samband við fullorðna karlmenn. Konur sem eiga í sambandi við unglingspilta telja sig gjarnan vera einhvers konar kennara í ástarlífi. Misnotkun birtist í ýmsum myndum. Það getur falist í ósæmilegri snertingu eða að þolandi verður að gæla við konuna. Það virðist afar erfitt fyrir samfélagið að viðurkenna að konur geti verið gerendur kynferðisofbeldis.Litið er á konur sem viðkvæmar tillfinningaverur í uppeldishlutverki en ekki ofbeldishneigðar. Mér er ekki kunnugt um neina íslenska rannsókn sem skoðar eingöngu konur sem gerendur í kynferðisofbeldismálum.
5.9.2013 | 17:16
Viðhorf til barnaníðinga.
Barnagirnd er þekkt í öllum samfélögum og nánast allsstaðar mætir hún mikilli andúð, hatri og fyrirlitningu. Dæmdir barnaníðingar mæta margvíslegri andstöðu og þeim er sýnd harka og kuldi í samskiptum. Þeir mæta margvíslegum og hörðum fordómum. Barnaníðingar hljóta fordæmingu samfélagsins allt frá því upp kemst um málið og löngu eftir að þeir hafa tekið út sinn dóm. Í barnagirnd felst það að hafa stöðugan kynferðislegan áhuga á börnum sem ekki hafa náð kynþroska. Skýringar á barnagirnd eru ýmis konar. Tilfinningaleg samsvörun getur átt sér stað milli fullorðins og barns sem og örvun. Viðkomandi getur verið ófær um að mynda tilfinningasamband við fullorðna manneskju. Einnig er hugsanlegt að þeir sem girnast börn séu hömlulausari en aðrir. Innra og ytra félagslegt taumhald ætti að koma í veg fyrir kynferðislegt samband fullorðins manns og barns. Kynferðisbrot gegn börnum er lítið hlutfall allra brota hér á landi. Árið 2009 var heildarfjöldi skráðra brota 74764. Kynferðisbrot voru 316 og brot gegn yngri en 15 ára 96. Þunglyndi og kvíði eru algeng hjá barnaníðingum. Umfjöllun fjölmiðla gefur oft brenglaða mynd af barnaníðingum. Í nærri helming tilvika eru náin tengsl milli brotaþola og gerenda. Barnaníðingar hafa lágt sjálfsmat og þá skortir samkennd. Þeir gera sér bjagaðar hugmyndir um eigin hegðun. Með dómi og refsingu verður barnaníðingur fyrir neikvæðri stimplun samfélagsins sem getur fest hann enn frekar í sama hegðunarmynstri. Margvísleg meðferðarúrræði eru til fyrir barnaníðinga bæði sálfræðileg og læknisfræðileg.Dæmdir barnaníðingar hafa gjarnan átt erfiða æsku. Hátt hlutfall hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Flestir lifa hefðbundnu fjölskyldulífi áður en ákæra kemur fram. Við ákæru og dóm rofna tengsl við fjölskyldu. Í fangelsisvist verða þeir fyrir ofbeldi í einni eða annarri mynd. Þegar úr fangelsinu er komið eru þeir stimplaðir menn sem eiga í margvíslegum erfiðleikum með að lifa eðlilegu lífi. Geðheilsa flestra er slæm. Eftir fangelsisvist reyna flestir að flytja á nýjan stað. Við þurfum öll að læra. Samfélagið allt þarf að læra hvernig á að taka við barnaníðingum þegar þeir hafa tekið út sína rrefsingu.
5.9.2013 | 13:29
Franziskus páfi krefst friðsamlegrar lausnar í Sýrlandi.
Páfinn hefur ritað bréf til Putin forseta Rússlands. Hann hvetur G-20 ríkin til að hindra fjöldamorð. Hann hafnar algerlega hernaðaraðgerðum gegn Sýrlandi. Það er siðferðileg skylda ríkjanna að ganga fram af ákveðni og hugrekki og leita sátta og samningaviðræðna. Eldflauga- eða flugvélaárásir á Sýrland eru algerlega tilgangslausar ritar Páfi. Þröngir hagsmunir hafa komið í veg fyrir að lausn hafi fundist. Næsti lauagrdagur á að vera dagur bænar og föstu fyrir frið í Sýrlandi og nálægum löndum. Í Sýrlandi er lítil borg Maalula. Íbúar eru kristnir og þar hefur verið barist á mannauðum götum. Nú vitum við ekki hversu mikil áhrif bréf, bænir og föstur hafa í hörðum og miskunnarlausum heimi. Stórveldin eru einnig mestu vopnaframleiðendur og vopnaseljendur heimsins. Það er hart barist um ítök og áhrif á mikilvægum svæðum. Helstu olíuauðlindir heims eru ómæld auðlind. Um hernaðarátök gilda alþjóðalög og ef þau eru brotin án viðbragða glata þau gildi sínu.
5.9.2013 | 12:02
Norski Verkamannaflokkurinn.
Arbeiderpartiet var stofnað 1887. Flokkurinn hefur haft afgerandi áhrif á stjórnmál í Noregi en sérstaklega á sjötta og sjóunda áratugnum. Á fyrstu áratugum síðustu aldar var flokkurinn byltingarsinnaður en þegar hann komst til valda eftir miðja öldina hafði hann varanleg mótandi áhrif á samfélagið. Uppbygging atvinnulífs, skipulagður vinnumarkaður og öflugt velferðarkerfi voru lykilatriðin í stefu flokksins. 1972 var stofnað ráðuneyti umhverfismála sem var það fyrsta í heiminum. Flokkurinn hefur haft náið samstarf við LO (norska ASI) en félagar í því eru nú 880000. Einar Gerhardsen og Gro Harlem Brundtland eru sennilega þekktustu leiðtogar flokksins. Norska módelið felst i sterku velferðarríki og nánu samstarfi stjórnvalda við samtök launafólks og samtök atvinnurekenda. Síðastiðin 43 ár hefur flokkurinn verið í ríkisstjórn í tæp 30 ár. Einn af valdamestu mönnum innan flokksins eftir miðja síðustu öld var Haakon Lie en hann var einderginn andstæðingur kommúnista. Jens Stoltenberg var fyrstur leiðtoga flokksins til að mynda samsteypustjórn en það var 2005. Samstarf flokksins og Lo er mjög náið. Forystumenn hittast reglulega á fundum í samstarfsnefndum. 62% af tekjum flokksin eru opinberir styrkir en 28% er vegna félagsgjalda. 10% er frá samtökum og fyrirtækjum.
4.9.2013 | 17:27
Alþjóðleg samkeppnishæfni Íslands.
WEF sem er stofnun í Sviss hefur sent frá sér skýrslu sína um samkeppnishæfni ríkja fyrir árin 2013 til 2014. Nú er WEF erlend skammstöfun en skýrslan er löng og ítarleg og þess virði að kynna sér efni hennar. Metin er staða ríkja að teknu tilliti tilfjölmargra þátta. Í heildarmati er Ísland í 31. sæti með 4.66 stig af 7 mögulegum. Sviss er í 1. sæti með 5.67 stig. Finnland er í öðru sæti, Svíþjóð í sjötta sæti, Noregur í ellefta sæti og Danmörk í 15da sæti. Puertó Rico er einu sæti á undan Íslandi og Eistland einu sæti á eftir. Ísland er í 1. sæti hvað varðar internetnotkun en í 102.(!) sæti hvað varðar hagkvæmni fjármálaþjónustu. Fjárfestingarregluverkið hér á landi lendir í 144. sæti. Í skýrslunni fær Ísland fremur jákvæða umsögn. Bent er á erfiðleika landsins á undanförnum árum. Menntakerfi er talið gott og atvinnulífið tiltölulega fljótt að tileinka sér tækninýjungar. Vinnumarkaður er sagður skilvirkur og sveigjanlegur og samgöngu -og samskiptakerfi kerfi gott. Þjóðhagslegt umhverfi er talið afar veikt sem og fjármálamarkaður. Þegar samkeppnishæfni er metin er tekið tillit til 12 þátta: stofnanir samfélagsins, innrigerð(infrastructure), þjóðhagslegt umhverfi,heilbrigðisþjónusta og grunnmenntun, æðrimenntun og starfsþjálfun, skilvrikini vörumarkaðar og vinnumarkaðar, þróun fjármálamarkaða, tækninýjundar, nýsköpun, stærð markaða og þroski viðskiptahátta.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar