Færsluflokkur: Bloggar
2.9.2013 | 08:59
Skuldir og eignir einstaklinga 2012.
Hagstofan hefur gefið út rit um skuldir, eignir og eiginfjárstöðu. Skuldir einstaklingar voru 1.922 miljarðar króna í árslok 2012. Fasteignaskuldir voru 63% heildarskulda. Fjölskyldur á aldrinum 40 til 49 ára skulduðu mest eða 29% af heildarskuldum. Skuldlausar fjölskydlur voru rúm 34 þúsund eða 18% allra fjölskyldna.70% allra fjölskyldna áttu 8.8 milljónir eða minna í eigið fé. Hæsti tekjuhópurinn hafði að meðaltali 19 milljónir í heildarárstekjur, skuldaði að meðaltali 24.8 milljónir og átti eignir að meðaltali 63.5 milljónir. Hæsta skuldatíundin skuldaði 31.7 milljón eða meira og samanlagðar skuldir þeirra voru 41% allra skulda. Heildareignir fjölskyldna í árslok 2012 voru 3.969 milljarðar króna. Þar af voru fasteingir 71%. Á árinu var fasteignamat hækkað um 7.4%. Peningaleg eign var 953 milljarðar króna.Verðbréf voru 38% af þessum eignum. 30% fjölskyldna eru með neikvæða eiginfjárstöðu og sú tala fer lækkandi. Heildartekjur einstaklinga á árinu 2012 voru 1.083 milljarðar króna. Samanlagðar ráðstöfunartekjur voru 842 milljarðar og höfðu hækkað um tæp 6% frá fyrra ári. (Hagtíðindi 30. ágúst 2013).
2.9.2013 | 08:04
Aflamark fyrir næsta fiskveiðiár; 15 stærstu fá 39% af aflamarki.
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki. Ítarlegar upplýsingar ná fá á heimasíðu stofunnar. Nú úthlutað 381.431 tonni í þorskígildum. Úthlutun í þorski hækkar um 17 þúsund tonn og verður nú 171 þúsund tonn.Nýjar kvótategundir eru blálanga, gulllax og litli karfi. Samtals 627 skip fá úthlutað aflamarki en lögaðilar eru 488. Brimnes RE 27 fær úthlutað 2.5% af úthlutuðum þorskígildum. 50 stærstu fyrirtækin fá 86% af öllu aflamarki. Þrjár stærstu heimahafnir eru Reykjavík, Grindavík og Vestmannaeyjar. Þau fyrirtæki sem mest fá eru Fisk Seafood hf, Brim hf, Vinnslustöðin hf, Vísir hf, Rammi hf, Skinney- Þinganes hf, Gunnvör hf, Nesfiskur hf, Síldarvinnsla hf , Ísfélag Vestmannaeyja hf, Ögur hf, og Gjögur ehf.
1.9.2013 | 11:32
Hverjir flytjast frá landinu og hverjir koma aftur?
Lengst af í sögu landsins hafa brottflutningar frá landinu verið varanlegir. Breyting hefur orðið á þessu á síðustu áratugum. Endurkomuhlutfall er nú tæplega 80% hjá íslenskum ríkisborgurum en til samanburðar er endurkomuhlutfall erlendra ríkisborgara sem hér hafa búið 17%. Ef við skoðum öll ríki aþjóðasamfélagsins búa um 3% í öðru landi en sínu upprunalandi. Ísland er mjög lítið hagkerfi og innflutningur og útflutningur vega þungt.Slík hagkerfi eru gjarnan mjög sveiflukennd og það hefur mikil áhrif á lífsafkomu fjölskuldna og einstaklinga. Almennt séð eru ástæður búferlaflutninga margvíslegar. Fólk getur neyðst til að flytja t.d. vegna náttúruhamfara, styrjalda og ofsókna. Taki fólk ákvörðun um að flytja er það yfirleitt vegna efnahagslegra aðstæðna. Margt hefur áhrif á hvert flutt er s.s. ástand á vinnumarkaði, námsmöguleikar og milliríkjasamstarf. Samfelld fólksfjölgun á 19du öld var ein af ástæðum Vesturheimsferða. Líklega hafa 25% landsmanna flutst til Vesturheims á árunum 1870 til 1914. Hrun síldarstofnsins leiddi til þess að rúm 4000 manns fluttust frá landinu á árunum 1969 til 1971. Strax árið 2009 varð brottflutningur fólks vegna Hrunsins en það dró úr honum 2010 og 2011. Brottflungingur nú er sambærilegur við það sem varð við Hrun síðdarstofnsins. Rúm 13 þúsund fluttust af landinu á þessum þremur árum en um 7500 fluttust til landsins. Þessar tölur taka eingögu til íslenskra ríkisborgara. Eftir 2006 hafa mun fleiri karlar en konur flust frá landinu eða um 10 þúsund fleiri. Langflestir þeirra sem flytjast búferlum eru á milli tvítugs og þrítugs. Ógiftir eru líklegri til að flytja en giftir. Stór hópur brottflutra eru hjón á aldrinum 30 til 40 með börn yngri en 14. Sá hópur sem hefur minnsta menntun og býr við lök kjör er ólíklegastur til að flytja. Almennt má segja að endurkoma ráðist af samanburði á lífskjörum í heimalandinu og landinu sem flutt var til. Lagt er mat á hvernig mannauður og menntun nýtist og er metinn í hvoru landi um sig.
1.9.2013 | 09:55
Verður Norðmaður næsti heimsmeistari í skák?
Eftir 68 daga hefst einvígi þeirra Magnus Carlsen og Vishy Anand frá Indlandi en hann er núverandi heimsmeistari. Carlsen er 22 ara en Anand 21 ári eldri. Carlsen er stigahæstur allra skákmanna í heiminum. Styrkleiki er mældur með Elo-stigum og Norðmaðurinn hefur 2862 stig en Anand hefur 2775 stig. Ef Carlsen fer með sigur af hólmi yrðu það söguleg tímamót í skáksögunni. Engum Norðurlandabúa hefur tekist það en Bent Larsen komst næst því á sínum tíma. Rússar hafa enn mikla yfirburði í skákheiminum en á síðustu árum hafa einkum skákmenn frá Kína og Indlandi sótt í sig veðrið. Glæsilegur árangur Carlsen á undanförnum árum hefur vakið mikla athygli í Noregi og skákáhugi aukist mikið. Nú um nokkurt árabil hefur skáklíf verið í mikilli lægð hér á landi hvað sem veldur. Þó hefur verið unnið gott starf af hugsjóna- og áhugamönnum í skáklistinni.
1.9.2013 | 09:11
Þagnarskylda kaþólskra presta og tilkynningarskylda.
Kaþólski biskupinn yfir Íslandi hefur sent frá sér tilskipun um viðmiðunarreglur varðandi kynferislega misnotkun barna. Þar er ítrekað að alger þagnarskylda gildi um það sem sagt er við skriftir. Innsigli skriftanna er órjúfanlegt skrifar biskup. Nú er öllum ljóst mikilvægi skrifta í sálusorg og sálgæslu. En eitt eru landslög og annað tilskipanir biskups. Í grein í mbl.is í dag er því haldið fram að tilskipun kaþólsku kirkjunnar sé andstæð barnaverndarlögum og vitnað sérstaklega í 16. og 17. grein laganna. Í 17. grein segir að lögin standi framar lögum eða siðareglnum sem varða ákveðnar starfsstéttir. þar eru nefndar stéttir eins og leikskólastjórar, læknar, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar. Nú þekkir bloggari ekki hvort tilkynningar frá slíkum starfsstéttum hafi verið rannsakaðar. Athygli vekur að lögfræðingar eru ekki taldir upp í 17. grein. Ef barnaníðingur hefur játað brot sitt fyrir verjanda sínum reynir lögmaðurinn eftir sem áður að halda fram sakleysi mannsins? Ef svo er ná barnaverndarlög ekki til þagnarskyldu lögmanna?
31.8.2013 | 14:37
Vændi á Íslandi.
Vændi hér á landi á sér langa sögu. Vændi hefur lengst af verið lokaður heimur sem skýrist af fámenni þjóðarinnar og ríkum hagsmunum til þöggunar. Við slíkar aðstæður er sá sem selur aðgang að líkama sínum í sérstaklega erfiðri aðstöðu. Í nútímanum er vændi nátengt mansali. Mansal getur falið í sér frelsissviptingu, kúgun, flutning milli landa og "hagnýtingu" í kynferðislegum tilgangi. Gerð var skýrsla um vændi á Íslandi 2002. Eldri vændiskonur höfðu fastan kunnahóp og vændið helst stundað í heimahúsum. Skýringar kvennanna var að þetta væri gert til að ná endum saman fjárhagslega. Götuvændi var talið lítt sýnilegt en tengdist oft vímuefnaneyslu eða heimilislausum einstaklingum. Í sömu skýrslu var fjallað um nauðarvændi unglinga. Greiðsla er ekki bundin við peninga heldur einnig húsaskjól, mat, vímuefni og ýmislegt annað. Vændisviðskipti geta átt sér stað innan sama vímuefnahópsins. Skipulegt vændi er þegar þriðji aðili hefur milligöngu um vændi og tekur hluta af innkomu. Skipulagt vændi getur verið með mismunandi hætti t.d. vændi sem tengist nektarstöðum eða að melludólgar leigi út "vinkonur" sínar. Samkvæmt skýrslunni var geðheilsa þeirra sem stunduðu vændi ekki góð; kviði, þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og lágt sjálfsmat. Vonleysi, ótti við ofbeldi og vanlíðan einkennir tilveruna. Mjög stór hluti þeirra sem stunda vændi hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í barnæsku. Marga hefur skort umsjón og eftirlit í uppeldi. Kynferðisofbeldi í æsku hefur langvarandi áhrif á sálarlíf þolandans. Samkvæmt lögum frá árinu 2009 eru kaup á vændi ólögleg á Íslandi. Ýmsar aðgerðir eru gegn vændi á Íslandi. Samtökin Stóra Systir voru stofnuð 2011. Samtökin hafa verið mjög gagnrýnin að aðgerðarleysi stjórnvalda sem er áberandi að þeirra mati. Kristínarhús var stofnað 2011. Stígamót stofnuðu húsið er er það athvarf fyrir fórnarlömb mansals og vændis.
30.8.2013 | 16:59
Starfsfólk skyndibitastaða í verkfalli.
Sumt er fyrirferðamikið í fréttum en annað ekki. Á hverjum degi eru stjörnur Hollywood í fréttum. Við fáum að fylgjast með hversdagslegum hlutum í lífi þeirra. Líf annarra er ekki jafn fréttnæmt að mati fjölmiðlanna. Í 60 borgum USA hafa starfsmenn skyndibitastaða háð baráttu fyrir hækkun lágmarkslauna. Þau eu nú 7.25 $ en krafan er að þau verði 15$ á klukkustund. Starfsfólk McDonald, Burger King, Wendy , KFC og Taco Bell krefjast auk hærri launa einnig rétt til að mynda stéttarfélög. Í Detroit eru starfsmenn skyndibitastaða um 53 þúsund. Starfsfólk skyndibitastaða er láglaunahópur sem á erfitt með að ná endum saman. Sumir verða að fá matarmiða(aðstoð) til að það takist. Laun 25% allra á vinnumarkaði eru 15$ eða minna á tímann. Þessi hópur fær margvíslega fjárhagslega og félagslega aðsoð. Nái krafan um 15$ á tímann fram að ganga gætu árslaun orðið 31200 $. Röksemdir vinnuveitenda eru hefðbundnar. Kauphækkanir munu leiða til hærra verðs á vöru og þjónustu, minnkandi eftirspurnar og uppsagnar starfsfólks. Almennt virðist vera stuðningur meðal almennings við kröfur starfsmanna. Laun þeirra eru lág og hópurinn hefur dregist aftur úr.
30.8.2013 | 12:30
Einvígi Merkel kanslara og Steinbruck kanslaraefnis jafnaðarmanna.
Á sunndagskvöld er sjónvarpseinvígið og stendur í einn og hálfan tíma. Mikið er í húfi fyrir jafnaðarmenn. Flokkur kanslarans hefur talsvert forskot sem erfitt er að vinna upp. Búist er við að áhorfendur verði um 20 milljónir og undirbúningur aðstoðarmanna hefur staðið yfir á fullum krafti. Þrjár vikur eru til kosninga. Nú þarf að efla samstöðuna og vinna óákveðna á sittband. Sjónvarpssendingin sjálf er skipulögð í smáatriðum. Ræðupúltin er á ákveðnum stað. Staðsetning myndavéla og myndskeið eru fyrirfram ákveðin. Það er mælt uppá sekundu svo ræðutíminn verði jafn. Spurningum stjórnenda á að svara á einni og hálfri mínúndu. Engin minnisblöð eru leyfð. Aðeins autt blað og penni. Merkel kemur vel fyrir. Hún er róleg, yfirveguð og móðurleg. Steinbruck nýtur ekki sömu vinsælda og Merkel. Hann hefur ekki sömu útgeislun og er álitinn dæmigerður technókrati. Merkel kanslari þykir ekki góður ræðumaður og orðræðan þykir sérkennileg. Steinbruck er afar góður ræðumaður og getur verið hvassyrtur. Honum hættir til að tala eins og sá sem veit betur(Besserwisser) en ætti að ráðum konu sinnar að tala meira frá hjartanu. Stefna stóru flokkanna er áþekk að flestu leyti í skattamálum. Jafnaðarmenn vilja hærri skatta á tekjuháa og meiri fjármuni í menntun og stuðning við barnafólk. Efnahagsástandið í Þýskalandi er að mörgu leyti gott og það er Merkel hagstætt.
30.8.2013 | 11:14
Messað yfir atvinnurekendum.
Aðalhagfræðingur Seðlabankans hélt fyrirlestur hjá Félagi atvinnurekenda 29. 8. 2013. Yfirskriftin var eðlilega þróun og horfur í efnahagsmálum. Batinn nú er hægari en á fyrri sambærilegum skeiðum. Stærðargráða hrunsins og erfiðleikar í Evrópu skýra það. Hér varð bankakreppa og gjaldeyriskreppa en slíkar kreppur eru djúpar og vara lengi. Botni náði íslenska hagkerfið snemma árs 2010 og síðan þá hefur batinn verið hraðari en hjá helstu viðskiptalöndum í Evrópu en hægari en í USA. Í mörgum þróuðum ríkjum eru hagvaxtarhorfur mjög litlar og líkur á samdrætti hjá nokkrum ríkjum. Fjárfestingarstig hér á landi er mjög lágt í sögulegu samhengi en hefur þó hækkað frá botni 2010. Fyrir hrun var fjárfestingarstig mjög hátt en einnig almenn skuldsetning. Þetta er eitt af því sem skýrir mjög litlar fjárfestingar eftir hrun. Góðar fréttir eru nú af vinnumarkaði ; atvinnuleysi minnkar, fólki í fullu starfi fjöldar, vinnutími lengist,fleiri flytjast til landsins en frá því og stórt hlutfall þeirra sem hverfa af atvinnuleysisskrá hverfa til launaðrar vinnu. Hins vegar eru slæmar fréttir af verðbólgu; hún er að hækka og horfur eru fremur slæmar. Laun hafa hækkað umfram framleiðni sem að öðru jöfnu ýtir undir verðbólgu. Raunvextir Seðlabankans eru nú 2%. Neikvæðir raunvextir árið 2011 lækkuðu fjármagnskostnað ríkissjóðs. Vextir hér á landi eru háir í alþjóðlegum samanburði vergna hárrar verðbólgu og verðbólguvæntinga. Miðað við lönd með álíka verðbólgu eru vextir hér lágir.(Stuðst við glærur á heimasíðu Seðlabanka Íslands.)
29.8.2013 | 12:23
Hvað er fasismi?
L W Britt rannsakaði fasisma í Þýskalandi, Spáni, Portúgal, Grikklandi, Chíle og Indónesíu. Hann rannsakaði þann tíma sem fasistar voru að völdum í þessum löndum. Hann taldi sig finna 14 sameiginleg einkenni. Þau eru : 1)öfgafull og stöðug áhersla á þjóðernisstefnu. Viðhorf til útlendinga nálgaðist vænissýki og mikil áhersla lögð á heiður og hermensku. 2) lítisvirðing fyrir mannréttindum og sérstaklega réttindum minnihlutahópa. 3)óvínir og sökudólgar kerfisbundið búnir til í þeim tilgangi að sameina þjóðina. 4) valdakjarninn var nátengdur her og hermennsku. Mikil áhersla á að styrkja herinn. 5) karllæg viðhorf ríkjandi. 6) Fjölmiðlar algerlega undir stjórn valdahópsins. 7) þjóðaröryggi varð að þráhyggju. 8)náið samband valdakjarnans og kirkjunnar eða kirkjudeilda. 9) stórfyrirtæki fengu afgerandi stöðu í hagkerfinu. 10) ofuráhersla/þráhyggja varðandi glæpi og strangar refsingar. 11) kerfisbundin spilling og sjálftökukerfi valdakjarnans. 12) sýndarkosningar haldnar. 13) verkalýðsfélög brotin niður og starfssemi bönnuð. 14) fyrirlitning á menntamönnum og listum. Tíminn milli heimsstyrjaldanna er venjulega talið söguskeið fasismans. Hann var endanlega sigraður af bandamönnum. Eftir stríð hafa margvíslegar nýfasískar hreyfingar og öfgahreyfingar til hægri komið fram. Þær hafa nokkur af þessum einkennum en önnur ekki. (stuðst við L W Britt í Council for Secular Humanism.)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar